Hjúkkuvandamál

Sá í Mogganum í dag að það vantar 600 hjúkkur... Getur Glitnir ekki græjað þetta fyrir okkur, sagan segir jú að þeir séu snillingar í mannaveiðumWink

Svo er líka spurning hvort ekki ætti að auðvelda þeim sem hingað flytjast menntaðir að fá menntun sína metna (þ.e. þeir sem koma frá löndum þar sem ekki er tvíhliða samningur við Ísland um gagnkvæma viðurkenningu æðri menntunar). Það er nefnilega frekar dapurt að sjá fólk sem hingað flyst með góða menntun og reynslu lenda í ófaglærðum láglaunastörfum vegna skrifræðis.

P.s. ég ber fulla virðingu fyrir hjúkrunarfræðingum og þeirra störfum þó ég kalli þá (hjúkrunarfræðingana) hjúkkur í fyrirsögninni;)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband