... já endilega, það er ekkert á Íslandi sem jafnmikil þörf er á að lækka verð á eins og áfengi... Hvaða rugl er þetta. Var samfylkingin virkilega í 12 ár í stjórnarandstöðu og notar nú tækifærið loksins til að styðja Sjálfstæðisflokkinn í þessu rugli. Ég sá í Kastljósinu í fyrrakvöld þegar Ágúst Ólafur samfylkingunni og áfengisráðgjafi að nafni Hörður voru að ræða þessi mál.
Ágúst Ólafur lagði mikla áherslu á að við ættum að fylgja öðrum Evrópuríkjum í málefnum sem snerta sölu á áfengi. Eigum við ekki frekar að fylgja þeim í verði á matvöru?? Mér þætti það nú gáfulegra. Ágúst Ólafur benti einnig á þann fjölda Íslendinga sem farið hefur í meðferð og væri það hlutfall þjóðarinnar meira en annars staðar. Gæti það ekki verið vegna þess að meðferð er ókeypis á Íslandi og tiltölulega auðvelt að komast í hana. Ég er alveg viss um að þeim fækkar sem fara í meðferð þegar verð á áfengi lækkar og auðveldara verður að nálgast það...not...
Ég skil þetta ekki alveg. Mér finnst margt frekar þarfnast lækkunar í íslensku þjóðfélagi heldur en áfengi. Áfengi er munaðarvara, ekki nauðsynjavara. Matvæli, lyf, barnavörur... væri ekki nær að lækka verð á þessum vöruflokkum. Þeir eru einnig ódýrari í löndunum í kringum okkur.
Ágúst Ólafur talaði um að auka þyrfti forvarnir. Það er alveg sama hversu miklar forvarnir eru, það er auðveldara að passa að barnið detti ekki ofan í brunninn ef hann er lokaður. Ef fara á að selja áfengi í matvöruverslunum skil ég ekki hvernig á að koma í veg fyrir að unglingarnir sem vinna það selji öðrum unglingum áfengi eins og þeir gera með sígaretturnar í dag. Og því ódýrara sem það er því auðveldara er að eiga fyrir því.
Ég man nú eftir því í gamla daga þegar maður var að fara í fyrsta sinn til Spánar og sá heilu og hálfu gangana í matvöruverslunum fulla af áfengi, mjög ódýru áfengi. Þá var ekki verið að kaupa eina og eina rauðvínsflösku til að njóta með kvöldmatnum... nei.
Ég skil ekki alveg hvað málið er. Hvað er að því að þurfa aðeins að hugsa fram í tímann. Áfengisverslanir eru út um allan bæ og mikið búið að rýmka afgreiðslutíma þeirra, þannig að ekki er erfitt að verða sér úti um flösku þegar þarf. Ágúst Ólafur minntist líka á verslanirnar sem selja vörur til áfengisgerðar eins og þær væru af hinu slæma. Ef fólk langar að búa sjálft til vínið sitt er það þá ekki í lagi. Sumir vefja líka sígaretturnar sínar.
og fyrst ég er byrjuð að tala um sígarettur þá veit ég um eitt sem mér þætti vænt um að lækkaði frekar en áfengið... Nicotintyggjó... það er jafndýrt að tyggja og að reykja... ekki það að ávinningurinn sé nægur við að hætta að reykja þegar litið er heilsunnar og hreinna umhverfis. En miðað við hve mikið það á að spara ríkinu að reykja ekki mætti alveg greiða aðeins niður nicotínvörurnar, alla vega frekar en áfengið.
Þessi þrjú orð eiga vel við þegar farið er í gegnum eigur sínar. Ég hef alltaf verið svona "geyma"týpa og á þ.a.l. allt. Það mætti helst halda að ég hefði einhvern tímann búið við skort, svo illa er mér við að láta nokkurn hlut frá mér. Ég safna alls konar plastdöllum, t.d. undan ís, og öllum teygjum, bréfaklemmum, blöðum o.s.frv. sem ég kemst í. Nokkuð ljóst má vera þar sem ég geymi svona "einskisnýta" hluti í þeirri fullvissu að ég muni þarfnast þeirra einn daginn, að ég geymi allt sem einhvern tímann hefur verið verðmætt eða haft tilfinningalegt gildi.
Á sl. 7 árum hef ég flutt þrisvar sinnum. Í geymslunni hjá mér eru enn kassar sem merktir eru "Björg-geymsla" frá því ég flutti í fyrsta sinn 19 ára gömul. Nú er ég að fara að flytja eina ferðina enn. Ég ákvað af því tilefni að taka til í geymslunni minni og sleppa allri tilfinningasemi. Ég fór í gegnum barnafötin (reyndar þriðja umferð), það var erfitt, hélt eftir uppáhaldsfötum, og tókst að koma þeim úr 4 ferðatöskum í eina. Ég fékk alveg tár í augun þegar ég fór í gegnum litlu skóna hennar dóttur minnar, hélt eftir þeim fyrstu, bleikum leðurskóm nr. 16, fór svo með möntru... "mér þykir alveg jafnvænt um dóttur mína þó ég gefi...." nike skó nr. 18, minnstu stígvél sem hægt var að kaupa á Íslandi...
Svo var komið að skóladótinu. Ég átti í möppum hvert einasta blað sem ég hef skrifað og fengið frá því ég var í grunnskóla. Það var undarleg tilfinning að standa fyrir ofan gáminn "sem étur" og horfa á eftir Hvassóárunum, Verslóárunum, Kennóárunum, HR-árunum, renna ofan í kjaftinn á ruslaskrímslinu. Ég verð nú að viðurkenna að ég hélt eftir nokkrum vel völdum ritgerðum til minningar um skólaárin, það er alveg nóg.
Það er alveg ótrúlega góð tilfinning að fara svona i gegnum dótið sitt. Halda því eftir sem vert er að halda og losa sig við sitt. Bæði er góð tilfinning að vita að einhverjir aðrir geti nú kannski notið fatanna og dótsins sem ég nota ekki lengur, og líka það t.d. að komast að því að það er gluggi á geymslunni og sjá hvernig gólfið er á litinn. Ég verð líka í hreinskilni að viðurkenna að ég legg víst nóg á ættingja og vini með að flytja dótið úr íbúðinni minni þó að ekki bætist við 30 kassar úr geymslunni og hellingur af hálfónýtum húsgögnum.
Nýja mottóið mitt er... gefa, henda, geyma... smá;)
jæja, þá er ég komin heim og nokkuð síðan. Ég hef ekki fundið "andann" koma yfir mig til að skrifa neitt af viti síðan ég kom heim. Ég er ekki ein af þeim sem finnst gaman að koma heim. Þegar við vorum að lenda aðfararnótt mánudagsins 2. júlí var grátt yfir og fannst mér mjög ljóðrænt að renna inn í gráan hversdagsleikann að nýju. Ég verð pínu sorgmædd að koma heim, finnst leiðinlegt að eitthvað sem ég hef hlakkað mikið til sé búið. Reyndar var ferðin mjög fín og áttum við mæðgur skemmtilegan tíma á Lanzarote í góðra vina hópi. Bæði hittum við gamla vini og eignuðumst slatta af nýjum.
Ekki það að við taki rólegheit og afslappelsi þegar heim er komið. Ég afrekaði það að kaupa og selja íbúð meðan ég var í útlöndum (reyndar með dyggri aðstoð Fanneyjar systur;) svo nú er ég á fullu að pakka. Flyt í Hafnarfjörð um miðjan ágúst. Bara allt að gerast... Flytja, skipta um vinnu... Einhver sagði einhvern tímann að góðir hlutir gerðust hægt. Ég vona að andstæðan eigi ekki við, þ.e. að þeir hlutir sem gerast hratt séu ekki góðir. Reyndar á það við um flest í mínu lífi, það gerist mjög hratt;) Ég hlakka mikið til að flytja. Fæ alveg geggjað útsýni. Allt annað en hryllingsveggurinn hér fyrir utan eldhúsgluggann hjá mér. Á nýja staðnum mun ég njóta morgunskaffisins og horfa yfir Garðabæ, Kópavog og Reykjavík. Þegar ég er í sólbaði horfi ég yfir Hafnarfjörðinn. Ekki slæmt! Svo er ég líka rosalega ánægð með þjónustu Hafnarfjarðarbæjar. Dóttir mín strax komin með pláss á leikskóla og getur farið í Karateskóla án þess að ég þurfi að greiða krónu. Frábært.
Dagarnir lída og nú hofum vid verid í sólinni í rúmlega viku. Vid héldum 17. júní hátídlegan tvisvar. Fyrst tann 15. tar sem allir Íslendingarnir á eynni komu saman og bordudu rosagódan mat. Tann 17. fognudum vid maedgurnar med gomlum og nýjum vinum og fórum út ad borda í tilefni dagsins. Vid fengum ekta 17. júní fíling... tad rigndi. Reyndar voru tad bara nokkrir dropar og stytti fljótt upp, en samt... just like home;)
Vid leigdum bíl og rúntudum um eyjuna. Lanzarote er mjog lítil eyja og haegt ad fara hana alla á dagsparti. Eyjan er mjog falleg og ad miklu leyti laus vid túrismann, nema rétt hérna vid strandirnar sunnan meginn. Í tessari viku er stefnan tekin á dýragard og vatnsleikjagard.
Tetta er voda ljúft líf. Hver dagur odrum líkur vid sundlaugina. Mikid er um ad vera fyrir jr. svo hún undir sér mjog vel.
Tangad til naest....
Bagga frekna;)
Vid maedgurnar erum nú loksins komnar í sólina. Sú eldri búin ad ganga í gegnum pakkann, eda: vilja gleypa sólina, brenna, fara í verslunarferd tví hún var brunnin og gat ekki verid í sólinni, ordin fín aftur og passar sig rosalega vel;) Lanzarote stendur vel undir nafni sem Fjolskylduparadís. Kíkid bara http://sumarferdir.is/lanzarote/
Hér er allt úr gardi gert til ad allir medlimimir fjolskyldunnar geti notid sólarinnar áhyggjulausir (bara muna ad bera á sig). Allt umhverfi er mjog fallegt og hreint og innfaeddir vingjarnlegir og hjálplegir. Vid erum búin ad rúnta um eyjuna. Allur hringurinn tekur ekki nema c.a. 3 tíma. Landslagid er vída stórbrotid og gaman ad keyra um litla spaenska fjallabaei, tó med ólíkindum sé hvernig haegt er ad hafa tvístefnu á rétt rúmlega metersbreidum gotum. Kannski gengur tad betur tví enginn er á jeppum (tetta maettu midbaejargestir i Rvk einnig taka sér til fyrirmyndar).
Okkur lídur s.s. bara mjog vel og erum hér í gódu yfirlaeti. SF búin ad eignast fullt af vinum og leikur sér vid laugina daginn út og daginn inn og býdur í náttfatapartý á kvoldin.
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum að meðalaldur starfsmanna margra stórverslana hefur stór lækkað á undanförnum árum. Vissulega unnum við líka í Hagkaup, en við hlið okkar var engu að síður fólk með mikla reynslu sem deildi henni með okkur.
Stundum þegar maður á samskipti við unga afgreiðslumenn og konur koma upp skemmtileg atvik...
...Dag einn ákvað ég að elda grjónagraut og vantaði kanilstangir og lifrarpylsu. Ég skrapp í Bónus á Laugaveginum og fann fljótt lifrarpysluna. Hvernig sem ég leitaði fann ég hvergi kanilstangirnar. Ég leitaði því ásjár fræsins (fræ=ung manneskja sem á framtíðina fyrir sér) á kassanum. Ég spyr drenginn á kassanum hvar ég finni umræddar kanilstangir. Ungi drengurinn horfir á mig smá stund og segir svo brosandi..."nei, nei... kanill er ekki stangir, kanill er duft". Ekki fékk ég kanilstangirnar í þeirri ferð. Svona fyrir þá sem ekki vita þá er kanilduftið malað úr stöngunum;)
Einn samkennari minn er að gera upp hjá sér eldhúsið og hefur sér til aðstoðar smið. Smiðinn vantaði terpentínu og sendi samkennarann sökum skammrar vegalengdar út í Olís. Kennarinn fékk þau fyrirmæli að kaupa terpentínu eða white spirit. Við afgreiðsluborðið í Olís var ung stúlka. Kennarinn spyr hvort þau eigi ekki terpentínu eða white spirit. Stúlkan hugsar sig um en neitar svo. Kennaranum er nett brugðið og segir "jú, eigið þið ekki terpentínu eða white spirit." Stúlkan neitar aftur og segir "nei, við seljum ekki svoleiðis súkkulaði".
Ég ætti kannski frekar að setja þessar sögur á Barnaland;)
Ég hlustaði á útvarpið í morgun. Meðal þess sem rætt var um var há tíðni skilnaðar á Íslandi. Þess til skýringar var m.a. sú staðreynd að margir "skilja á pappírum" til þess að fá hærri barnabætur og þá aðstoð sem einstæðum foreldrum er ætluð.
Mér finnst oft í umræðunni á Íslandi að fólk telji sig eiga rétt á hinu og þessu. Það virðist alveg gleyma því til hvers þessar og hinar bætur eru. Það er nokkuð ljóst að yfirleitt er erfiðara fyrir einn einstakling að reka heimili heldur en tvo. Margir kostnaðarliðir eru þeir sömu hvort sem um er að ræða einn rekstaraðila heimilis eða tvo, s.s. hiti, rafmagn, fasteignagjöld o.s.frv. Bætur eru þess vegna hugsaðar til að auðvelda einum að reka heimili. Barnabæturnar eru auk þess tekjutengdar þannig að ef tveir foreldrar hafa til samans lægri tekjur heldur en eitt einstætt þá fá þeir hærri barnabætur.
Mér finnst líka svolítil (eða jafnvel heilmikil) tilætlunarsemi að ætlast til að ríkið eða sveitarfélagið reki eða sjái fyrir fjölskyldu manns. Þegar þannig er litið á málið verður líka að hugsa til þess hvaðan ríki og sveitarfélög fá peninga. Það eru þá skattpeningar annarra sem fara í umönnina. Finnst fólki í alvörunni alveg sjálfsagt að annað fólk sjái fyrir því og fjölskyldu þess??
Þeir sem eru í sambúð eða giftir og kvarta yfir því að fá ekki sömu ívilnar og einstæðir, gleyma því að þeir sitja ekki við sama borð og einstæðir. Finnist þeim erfitt að standa í þessu tveir, þá ættu þeir að prófa það einir. Fólk verður bara að sníða sér stakk eftir vexti.
Svolítið dómhörð???????????
Ég velti því stundum fyrir mér hvort borgin standi fyrir atvinnubótavinnu. Hér fyrir utan hjá mér reis stærðarinnar riðjárnsveggur. Hann þjónar sínu hlutverki ágætlega. Þegar veggurinn var risinn var hafist handa við að gera svæðið fyrir framan hann snyrtilegt og fínt. Steyptur var kantur í c.a. meters fjarlægð frá veggnum, lagður göngustígur og svo sett mold (og vonandi verða gróðursett þétt og falleg tré sem hylja vegginn. Nema hvað... nú hefði ég haldið að kominn væri tími á gróðursetningu í moldinni, en nei. Nú eru borgarstarfsmenn að rífa niður kantinn sem þeir settu upp ekki alls fyrir löngu. Ég spyr mig... er engin fyrirhyggja í plönum borgarinnar?? Er peningum okkar borgarbúa ekki betur varið í annað en að steypa og rífa niður gangstéttarkanta??
Hugmynd: Væri kannski hægt að ljúka lóðinni við Laugalækjarskóla... skólinn er nú orðinn nokkurra tuga ára gamall og enn með ókláraða lóð...
Við mægurnar skruppum í smá bíltúr í gær. Út um gluggann sáum við m.a. fólk að viðra hunda og ketti á hlaupum. Upphófst þá enn ein umræðan um gæludýr á heimilinu (eða réttara sagt skort á þeim). Þar sem jr. er með ofnæmi fyrir köttum eru þeir úti og þar sem við erum lítið heima eru hundarnir úti. Ég sagði því Fanneyju að við skildum athuga með páfagauk þegar við kæmum heim og hvort hana langaði ekki í páfagauk sem gæludýr. Hún sagði "jú, jú... eða kind í garðinn. Kind í garðinn!! Það er þannig séð ekkert svo fráleit hugmynd. Kindur eru nokkurn veginn sjálfbjarga, geta séð um sig sjálfar hvað varðar fóður yfir sumartímann, auk þess sem ekki þyrfti að slá grasið og reglulega fengi grasið áburð. Jú svei mér þá...
Hún dóttir mín er mikið farin að spá í samskipti kynjanna (þó að nú væri... orðin 4ra ára;) Um daginn tilkynnti hún mér í fyrsta sinn að hún væri skotin í manni. Hún var að horfa á Skúbídú (ekki teiknimyndina) og varð voða skotin í söngvara sem söng í myndinni. Í dag brugðum við okkur svo í búð. Ég keypti í matinn og síríuslengju handa Fanneyju. Nema hvað þegar við erum rétt sestar inn í bílinn kemur fjallmyndarlegur drengur með síríuslengjuna, sem ég hafði gleymt á borðinu. Ég þakka manninum fyrir og þegar ég hafði lokað hurðinni heyrðist í minni "oh... hann er æðislegur... ég er skotin í honum". Mér líst náttúrulega ekkert á þetta fjöllyndi dóttur minnar og spyr hana um manninn sem hún var svo skotin í fyrir nokkrum dögum. Hún svarar "æ já, hann, ég var búin að gleyma honum. En það er allt í lagi, ég get alveg átt tvo kærasta;)" Ég reyndi að útskýra hvernig málin gengu fyrir sig í okkar samfélagi og þá spyr hún "Mamma, verða kærastar að hafa hár á maganum?" Ég náttúrulega svara því neitandi og segir hún þá "þá verður Högni Gunnar (á leikskólanum) bara kærastinn minn:) Mikið var ég ánægð með að tilvonandi tengdasonur væri á svipuðum aldri en ekki 20-30 árum eldri.
Ég er búin að vera rosalega dugleg að taka til, raða og henda eftir að ég kláraði skólann. Þegar ég tók geymsluna rakst ég á kassa með öllu Barbie dótinu mínu og ákvað að leyfa jr. að fá það til að leika með. Í kassanum var m.a. Barbie, Ken og lítil barbie stelpa auk mjög fínna svefnherbergishúsganna, hjónarúm þ.á.m. Svo var sú stutta að leika með dótið, svo kalla ég á hana að fara að sofa og vildi hún láta dúkkurnar fara líka að sofa. Spyr hún mig þá hvar rúmið hans Kens sé. Ég segi henni að hann sofi nú bara upp í hjá Barbie. Mín var þá aldeilis hneyksluð... "Hvar á þá barnið að sofa!!" Það er kannski kominn tími á að hún fari að sofa í eigin rúmi;)
Á föstudaginn var blásið til sveitaferðar á leikskóla dóttur minnar. Tvær fullar rútur af eftirvæntingafullum börnum og foreldrum lögðu leið sína upp í Kjós. Veðrið var hið sæmilegasta þótt snjórinn næði langt niður hlíðar fjallanna sem við blöstu á leiðinni. Bærinn sem heimsóttur var gerir út á heimsóknir skólabarna svo móttaka okkar og allur aðbúnaður ungviða mannskepnunnar var til fyrirmyndar. Í húsi gátum við skoðað flest þau dýr sem teljast til húsdýra á Íslandi og þar sem vorið er komið (eða á að vera langt komið, ekki samt hægt að finna það á hitastiginu), var mikið af ungviði dýranna á staðnum sem hægt var að skoða. T.d. sáum við lömb, kiðlinga, kettlinga og hvolpa, auk hesta, belja, kinda, geita og hænsna. Allt var rosalega gaman og vel úr garði gert, nema eitt. Á svæðinu voru litlir kettlingar, þrjú lítil grey, sem skulfu og tístu af hræðslu þegar þeim var kastað á milli smábarnanna. Þeir voru geymdir í búri og svo dregnir út og settir í fangið á barni, fleiri börn hópuðust í kring til að skoða gersemarnar og náttúrulega vildu allir fá að klappa og knúsa. Mér fannst þetta vera svolítið "dyre-plagery" eins og danskurinn segir. Kettlingarnir voru að mínu mati allt of litlir til að þola svona meðferð. Ég fékk einn í fangið og hann skalf svoleiðis og titraði, maður fékk bara sting í hjartað og vildi helst bara stinga honum inn á sig og fara með heim. Fleiri fullorðnir í ferðinni voru á sama máli. Við verðum líka að kenna börnum okkar að umgangast dýrin. Svona lítil dýr á bara að horfa á. Við verðum að bera virðingu fyrir náttúrunni og afkvæmum hennar, ekki einungis nota hana okkur til skemmtunar. Á svæðinu voru líka hálfstálpaðir hvolpar sem höfðu mikið gaman að því að eltast við krakkana og láta þá eltast við sig. Það var alveg nóg um að vera og til að skoða þó að kettlingarnir litlu hefðu verið geymdir í mánuð eða svo þangað til þeir væru stærri og stálpaðaðri og betur hæfir til að henda á milli 50 leikskólabarna.
PS. ég veit allt um hve börnin geta verið harðhent. Alveg með ólíkindum að hann Garpur skuli enn halda öllum limum, enda einstaklega snjall að fela sig og fljótur að hlaupa;)...oftast...
... byrjaði ég á því að kaupa mér nýjan bíl, Lexus, BMW, Infinity, Audi eða Nissan Murano, jafnvel tvo eða þrjá. Þegar því væri lokið réði ég þýðendur og þýddi bréfið frá krabbameinsfélaginu yfir á þau tungumál sem konur landsins tala og sendi þeim bréf, þar sem útskýrt væri mikilvægi þess að fara í skoðun auk þess sem það yrði gjaldfrjálst. Ég gerði samning við Krabbameinsfélagið og styrkti það til að þær konur sem ekki eiga þess kost að greiða gjaldið fengju skoðunina fría.
Næst myndi ég gefa viðbyggingu við BUGL auk fjár sem nýtast ætti við launakostnað og viðhald eignarinnar næstu árin. Ég myndi splæsa í eitt meðferðarheimili fyrir unglinga, jafnvel stækkun á Stuðlum.
Hvað félagsmálin varðar þá myndi ég stofna sjóð til styrktar fátækum börnum svo að þau fái notið sömu tækifæra hvað varðar íþróttir, tónlist og aðrar tómstundir.
Já ég held ég byrjaði á þessu.
En þar sem ég er ekki rík verð ég að láta nægja að styrkja góð málefni með þúsundkalli hér og þúsund kalli þar og keyra um á Ford Fiesta;)
Stundum fallast manni alveg hendur. Nógu ógeðslegt er að lesa þessa frétt hér á Mbl.is, en ég heyrði hana líka í útvarpinu fyrr í dag. Þar voru nákvæmari lýsingar á brotum mannsins og m.a. það að hann hafi ítrekað brotið gegn dóttur sinni á níunda áratuginum. Var hann dæmdur í 15 mánaða fangelsi ´91 fyrir þessu ítrekuðu grófu kynferðisbrot. Ekki kom fram í fréttinni hvort maðurinn hafi þá fengið skilorðsbundinn dóm eða ekki. Ég skil þetta ekki. Ég verð bara að viðurkenna það. Í fyrsta lagi skil ég ekki hvernig þessi maður, faðir stúlkunnar, getur enn þá fengið að vera í sambandi við hana. Stúlkan hlýtur að hafa forráðamann sem gætir hagsmuna hennar. Faðirinn hlýtur með framferði sínu hér áður fyrr að hafa fyrirgert öllum rétti til samskipta við stúlkuna. Mér finnst einhvern veginn að við hljótum að eiga að geta komið í veg fyrir að þessir viðbjóðslegu, mannskemmandi atburðir geti hent sömu manneskjuna ítrekað af hendi sama manns. Hvað þá þegar um er að ræða manneskju sem erfitt á með að bera hönd fyrir höfuð sér. Mér finnst samfélagið bera ábyrgð þegar um er að ræða skerta einstaklinga. Við hljótum að geta komið í veg fyrir svona hryllilega atburði. Ég held að ekkert geri mig eins reiða og vanmáttuga þegar ég heyri dóma í kynferðismálum. Mikið vildi ég óska þess að næsti dómsmálaráðherra væri áhugamaður um þessi mál og gerði sitt til að refsiramminn væri nýttur til fulls. Nokkuð ljóst er að ekki dugir að loka þessa menn inni í nokkra mánuði, hvað þá að setja á þá skilorðsbundinn dóm. Það er hreinlega til skammar.
Um leið og ég fjargviðrast yfir þessu langar mig að þakka Blátt áfram fyrir frábært og óeigingjarnt framlag til forvarna í kynferðisbrotamálum. Ég og dóttir mín litla lesum "Minn einkastað" og getum í kjölfarið spjallað saman um hvað má og hvað ekki gera við minn einkastað. Bókin gefur foreldrum umræðugrundvöll til að ræða þessi mál við börn sín.
Back in the blog world Jæja, þá er annasamasta tímabili ársins lokið (vonandi). Samræmdu lokið... á eftir að segja skoðun mína á þeim... ferðalagi 10. bekkinga lokið (gekk rosalega vel... yndislegustu unglingar landsins í Laugarnesinu;)... ég búin með skólann og ná í mastersgráðuna mína... púff ég verð bara þreytt á að telja þetta allt upp. Til að halda upp á þessa merku áfanga og þá staðreynd að ég á 15 ára stúdents afmæli (ótrúúúúlegt, þessi unga kona!!) skellti ég mér á stúdentafagnað Verslunarskólans. Til að byrja með hittust 15 og 20 ára árgangarnir í fordrykk í Golfskálanum í Grafarholti (sem mér tókst að finna, Jibbí), þar var allt dannað og fínt. Okkur vinkonunum datt í hug að "spice-a" drykkina til að fá smá stuð í liðið en ákváðum svo að innan um alla þessa lögmenn væri það ekki besta hugmyndin svo við skelltum okkur í bíltúr og skoðuðum eða leituðum uppi stöðuvötn á stór Reykjavíkursvæðinu. Þegar þau voru fundin lá leiðin í Gullhamra þar sem allir afmælisárgangarnir hittust. Það má með sanni segja að þar hafi verið saman kominn ótrúlegur fjöldi af fallegu og flottu fólki. Björgólfarnir áttu afmæli með okkur en þar sem þeir gátu ekki verið með okkur sendu þeir fólkinu og skólanum góðar kveðjur og buðu upp á fordrykk (helst til margir fordrykkir á einum degi:) Maturinn var fínn, dádýrasteikin sínu best. Mikið var sungið og litlu börnin sem nú eru í skólanum sýndu okkur atriði úr Nemendamótssýningunni sinni "sextán" og stóðu sig með stakri prýði. Skemmtilegast var náttúrulega að hitta gömlu bekkjarfélagana, fá fréttir og hlæja saman aftur.
P.s. Boston legal... tær snilld;)
...hef ég heyrt. Mikið er ég nú fegin að það hrjáir mig ekki ofan á allt annað. Undanfarið hef ég verið í svolítilli naflaskoðun (kannski pre-midlife crises;) og komst m.a. að því að ég er haldin söfnunaráráttu. Ekki er nóg með það að ég sé haldin meðvitaðri söfnunaráráttu, sem ég kýs að kalla að hafa gaman að af því að safna, heldur virðist ég gera það ómeðvitað líka. Þetta byrjaði svo sem allt ósköp sakleysislega. Ég byrjaði að safna frímerkjum, glansmyndum, sérvéttum og slíku dóti sem stelpur safna oft, en ég óx ekki upp úr því. Ég fór að safna bollastellum, það tók frekar mikið pláss, svo ég fór að safna stökum bollum og kisustyttum og swarowski kristal og antík munum og þjóðbúningadúkkum og fingurbjörgum og skjaldbökum og ýmsu smádóti í smáhlutahillur (sem ég á orðið 3 af í dag), tók eitt stutt englatímabil. Já, þetta eru meðvituðu söfnin mín sem ég vanda vel til og vel hvern hlut af kostgæfni í. Reyndar nýbyrjuð í smá hafmeyjuþema...
Jæja eitt af því sem naflaskoðunin leiddi í ljós var að það er allt of mikið af dóti í kringum mig. Ég á t.d. óheyrilegt safn af kiljum, bæði innlendum og erlendum og uppskriftir í tonnavís, margra ára safn af Gestgjafa sem hefur samviskusamlega verið raðað ólesnum í gáma. Allt sem ég hef nokkurn tímann skrifað geymi ég, þó svo að öll verkefni síðustu ára séu til á tölvutæku. Í eldhúsið kemst ekki meira af áhöldum, því þegar ég kaupi eða fæ nýtt hendi ég aldrei neinu, jafnvel þó að það sé til mín komið frá fyrstu búskaparárum móður minnar og eigi frekar heima á safni en í eldhúsi 21. aldarinnar. Og fötin mar... ég á föt síðan ég var unglingur, tískan fer í hringi en ég er dulítið bjartsýn með að ég komist nokkurn tímann í þetta aftur, en það gæti verið að Fanney vilji þetta... eða hvað... svo ég tali ekki um fylgihlutasafnið... töskur, belti, skór, bling, ég á tísku síðastliðinna 20 ára.
Ég hef ættingja mína grunaða um að hringja í mig þegar þeir nenna ekki í Sorpu, miklu styttra og betra að fara bara með dótið til Bjargar. Ég fæ nefnilega sting fyrir hjartað... "hvað segirðu... gömul kista, vegalaus... jú, jú komdu bara með hana til mín". Þannig er nú komið að heimili mitt líkist helst munaðarleysingjahæli úrsérgenginna hluta og ég hef ekki pláss fyrir nokkurn skapaðan hlut. Tvennt er í stöðunni... Kaupa stærri íbúð svo hver hlutur fái sinn lögskipaða fermetrafjöld eða... grisja. Þar sem ég er í námi er fyrri kosturinn ekki fyrir hendi svo ég verð að grisja. Ég hóf verkið í dag og fyllti 2 svarta ruslapoka af uppskriftum og gömlu skóladóti, sem ég væri búin að henda ef ég gæti lyft pokunum.
Naflaskoðunin leiddi nefnilega annað mikilvægt í ljós, sem ég reyndar hef vitað lengi og hummað fram af mér... Mig langar aftur í bæinn. Það er ekkert flókið. Ég er Miðbæjarrotta með stóru M-i. Ég fór meira að segja að skoða íbúð á Klapparstígnum í dag. Komst að því að fasteignasalar hafa ekkert breyst með það að fegra hlutina og láta þá lesast miklu betur en þeir líta út. Málið er bara og ástæða þess að ég lét dótið vaða í pokana að íbúðir á draumasvæðinu eru miklu dýrari og ég verð að fara í minni íbúð ætli ég aftur í bæinn. Svo nú er það bara henda henda henda.
Ég fór á rúntinn eftir bíó á miðvikudagskvöldið. Andrúmsloftið í miðbænum var magnað. Hálfgert mistur var yfir bænum, gula lögguteipið í Lækjargötu og á ofanverðum Laugaveginum, löggur um allt. Það hefði ekki komið mér á óvart að sjá fólk bera vörur út úr verslununum, þannig var stemningin rafmögnuð.
Í kjölfar brunans hefur umræðan spunnist um uppbyggingu svæðisins sem brann. Margir vilja að Austurstræti 22 verði byggt aftur í upprunalegri mynd enda ómetanlegt menningarverðmæti. Þarna bjó jú Jörundur Hundadagakonungur, þannig að húsið hefur mikilvægan sess í sögu Íslendinga. Mér finnst svo undarlegt hvernig við Íslendingar komum fram við þessi menningarverðmæti okkar. Mér finnst ekki við hæfi að sögufræg hús séu notuð undir öldurhúsastarfsemi. Þannig hefur það nú samt oft verið. DUUS-hús og Fógetinn voru skemmtistaðir. Þau hús hafa nú verið gerð upp og eru miðbænum til sóma. Það er auðvelt að vera vitur eftir á. Verði Austurstræti 22 byggt aftur í upprunalegri mynd, gæti verið hægt að hafa þar safn og jafnvel kaffihús á daginn. Það er alveg kominn tími á að ákveðið verði hvernig miðbær Reykjavíkur á að vera, hvaða þjónusta þar á að vera o.s.frv. Mér finnst komið að því að Reykjavík verði eins og svo margar aðrar borgir og bæir.  Í miðbænum verða kaffihús og krár, kannski opnar til eitt og svo næturklúbbar og dansstaðir í úthverfunum. Á þann hátt gengur betur að vernda bæinn auk þess sem mesta næturstarfsemin yrði flutt úr íbúðarhverfi, sem miðbærinn svo sannarlega er. Á þann hátt gætum við gert elsta hluta Reykjavíkur að þeim menningarstað sem hann á sögulegan hátt er.