Blessað barnalán

Ég eignaðist litla frænku í gærkvöldi, og nú er hún komin heim og ég rétt skrapp að kíkja á hana. OMG... það klingir alveg í eggjastokkunum. Hún er pínulítil og fullkomin, var 12,5 merkur og 50 cm, einstaklega fallegt barn og á ekki langt að sækja það;) Þá eru komin 4 lítil börn á einum mánuði, Linda samstarfskona mín reið á vaðið, svo komu Begga og Siggi, svo Hróar og Berglind og nú Brynhildur og Obbi. Já ég verð að viðurkenna mig langar líka!! Fanney skrapp með mér yfir að skoða litlu frænku. Það tók smá stund að útskýra fyrir henni að við værum að fara að skoða frænku okkar þó að hún hefði oft heyrt Alexander frænda sinn kalla hana systur, þá væri hún ekki systir hennar. Litla daman var náttúrulega yndisleg, sýndi okkur augun og allt. Þegar við vorum að fara þá spurði Fanney hvort við ættum ekki að taka lilluna með, hún væri jú OKKAR, frænka okkar;)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband