Til hamingju Begga og Siggi!

Berglind vinkona mín eignaðist dóttur í gær 28. mars kl. 18.30. Allt gekk vel og heilsast þeim mæðgum vel. Ég á eftir að fara að kíkja á dömuna en treysti því að kominn sé í heiminn lítill rauðhærður skæruliði eins og hún á kyn tilWink. Til hamingju Begga og Siggi.
Þegar barnið er komið í heiminn þá tekur við næsta bið. Og hvað á barnið að heita.... Ég treysti reyndar Beggu og Sigga alveg fullkomlega til að velja fallegt og gott nafn á dótturina. Ég valdi minni dóttur stórt og mikið nafn, ber það aðeins þess merkis að hún er fædd um miðjan vetur og fékk hún því tvö snjónöfn, Snæfríður Fanney. Þegar ég rekst á fréttir frá mannanafnanefnd eða sé lista yfir nöfn ungra barna spái ég stundum í hvað foreldrar séu að hugsa. Kannski finnast þeim bara þess nöfn falleg og trúa því að þau eigi eftir að færa börnum þeirra gæfu. Ég man eftir að þegar ég var unglingur, forfallinn ísfólksaðdáandi, þá var ég alveg með það á hreinu að dóttir mín ætti að heita Villimey Líf... svo varð ég fullorðin. Það eru ekki bara einhver ný "tískunöfn" sem mér finnast undarleg heldur líka gömul nöfn. Stundum er það samt þannig að fólk þekkir einhvern sem ber nafnið, oft nákominn ættingja sem því þykir vænt um og skýrir því nafni sem ekki er þjált. Nöfn sem til voru í gamla daga en hafa sem betur fer dottið upp fyrir eru t.d. Bjálfi og Kálfur. Ég hugsa stundum ætli Bamba, Hræreki, Þiðranda, Spartakusi, Öðrum (Annar), Dreka, Anga eigi eftir að líða svipað og Bjálfa leið í gamla daga. Með fullri virðingu fyrir þeim foreldrum sem kusu þessi nöfn á drengi sína, þá held ég að börn hafi alveg nóg með sitt þó ekki sé verið að klína á þau einhverjum ónefnum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mikið er ég hjartanlega sammála þessari klausu Björg.  Stundum finnst mér að það sé einhver lenska hjá landanum að finnast gamalt og gott, hallærislegt eða kannski er ég bara svona gamaldags og íhaldssöm en mér finnast nöfn eins og Jóhann, Sigríður, Linda og Björg mun fallegri :) en Afródíta og Bambi.

Kveðja Linda pinda pæ

Linda Björk (IP-tala skráð) 2.4.2007 kl. 09:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband